Íslenska

English

Deutsch

Minjasafn Egils Ólafssonar Hnjóti

Vestfirðir Skemmtilegur staður til að skoða

Við erum við Patreksfjörð á sunnanverðum Vestfjörðum

Við erum við Patreksfjörð á sunnanverðum Vestfjörðum Minjasafnið að Hnjóti er í Örlygshöfn við sunnanverðan Patreksfjörð og leiðin út á Látrabjarg er um hlaðið á Hnjóti. Það ætti enginn að láta hjá líða að stoppa þar, kynnast merkri sögu og skoða merka safngripi og njóta þess í leiðinni að vera til í fallegu og friðsælu umhverfi þar sem gamli tíminn er aldrei langt undan.

Baldur eða Barðaströndin

Þegar ferðalangur leggur leið sína til okkar að Hnjóti á hann tvo skemmtilega valkosti. Að minnsta kosti ef hann er að koma að sunnan. Annað hvort getur hann tekið Baldur frá Stykkishólmi og notið útsýnis á Breiðafirði með viðkomu í Flatey eða ekið hina gullfallegu Barðaströnd. Hvor leiðin sem er valin erum við á safninu viss um að til okkar kemur hann glaður og ánægður. Þegar hann hefur lokið við að skoða safnið á hann hins vegar fjölmarga valkosti til að auka ánægjuna. Hér nefnum við Látrabjarg og Rauðasand. Síðan má aka Steingrímsfjarðarheiði til baka um Ísafjörð og alla hina firðina.

Opnunartími

Safnið á Hnjóti er opið alla daga frá
21. maí til og með 11. september.

Safnið er opið frá kl. 11 til kl. 19.

Sumardagskrá 2011

Sumardagskrá 2011 er væntanleg ...





Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Sími: 4561511, Netfang: museum@hnjotur.is, Vefhönnun: Emstrur