

Egill Ólafsson var fæddur á Hnjóti og bjó þar alla sína tíð. Hann hóf á unga aldri að safna gripum úr fortíðinni og þegar upp var staðið hafði hann komið upp á Hnjóti einhverju merkasta minjasafni landsins. Þar er margt muna sem hvergi eru annars staðar til og bera glöggt vitni þeirri framsýni sem Egill var gæddur. Honum tókst með harðfylgi að bjarga miklum menningarverðmætum sem annars hefðu lent í glatkistunni.
Í safninu eru hlutir úr eigu Jóns Thorbergs sem missti fótinn á unga aldri og vildi ekki skipta á kjörum við nokkurn mann. Lífshlaup Jóns gefur góða innsýn í lífið eins og það var hjá alþýðufólki í upphafi 20. aldar.
Safnið er í eigu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem sjá um rekstur þess. Það hefur ótal möguleika til að vaxa og dafna en til þess þarf það aukið rekstrarfé. Standa vonir til þess að það muni í náinni framtíð eflast og styrkjast.
Það má segja að mjór er mikils vísir, þegar fjallað er um ævistarf bóndans á Hnjóti og konu hans Ragnheiðar Magnúsdóttur en saman byggðu þau upp þetta merka safn. Þjóðin stendur í þakkarskuld við þau vegna þess.

Safnið á Hnjóti verður opið alla daga frá
24. maí til 13. september.
Opnunartími er klukkan 10 - 18.
Endanleg dagskrá er ekki tilbúin en hér eru nokkur atriði sem verða í einhverri mynd:
Vinsamlegast hafið samband:
Júní:
6 - 7 júní verður Örlygi bát safnsins siglt á sjómannadeginum á Patreksfirði, þar gefst fólki kostur á að fara í smásiglingum og finna hvernig er að sigla slíkum bát.
Júlí:
12. júlí Safnadagurinn
Messa í Sauðlauksdalskirkju klukkan 13:00. Messukaffi á eftir í Minjasafninu.
Klukkan 14:30 segir Sigríður Guðbjartsdóttir Láganúpi frá lífinu á Rauðasandi í kringum 1940.
Myndir sem hún málaði á steina af bæjum á Rauðasandi frá þeim tíma eru sýndar í safninu.
Aðgangur ókeypis í tilefni dagsins.
Ágúst:
Sunnudaginn 9. ágúst mun Rannveig Haraldsdóttir sýna hvernig hægt er að nota jurtir til að mynda í suðu. Kynning hennar hefst kl. 13 og gert er ráð fyrir að henni ljúki kl. 17. Suðudagurinn er liður í sýningunni, Sjóvettlingar, suða og sultugerð sem verður í safninu í sumar.
September:
Samantekt á því áhugaverðasta sem kom fram í sumardagskránni.
Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Sími: 4561511, Netfang: museum@hnjotur.is, Vefhönnun: Emstrur