Íslenska

English

Deutsch

Minjasafn Egils Ólafssonar Hnjóti
Minjasfnið að Hnóti - Björgun úr Sargon

Vestfirðir Skemmtilegur staður til að skoða

Háskaleg sjóslys í gegnum aldirnar

Látrabjarg, eitt stærsta fuglabjarg landsins, er stutt frá safninu og þar er margt muna sem tengist nytjum bjargsins. Þó bjargið hafi verið mikil matarkista þá hefur það ekki síður verið vettvangur slysa og þar hefur fjöldi sjómanna farist í gegnum tíðina. Björgunarafrekinu við Látrabjarg eru gerð góð skil í safninu.

Björgunin úr Sargon 1948

Hlutir úr togaranum Sargon sem strandaði undir Hafnarmúlanum eru í safninu og þar er sýnd leikna heimildarmyndin um Björgunarafrekið við Látrabjarg en hluti af myndinni er tekin við strandið á Sargon. Myndin er sýnd í safninu.

Minnisvarði

Ríkisstjórnin lét reisa minnisvarða um þau sjóslys sem orðið hafa í Rauðasandshreppi. Það er alveg þess virði að ganga upp að minnisvarðanum og horfa yfir sveitina og komast í snertingu við hamfarir hafsins.

Minjasafnið Hnjóti Örlygshöfn - Björgun

Opnunartími

Safnið á Hnjóti verður opið alla daga frá
24. maí til 13. september.

Opnunartími er klukkan 10 - 18.
Endanleg dagskrá er ekki tilbúin en hér eru nokkur atriði sem verða í einhverri mynd: Vinsamlegast hafið samband:

museum@hnjotur.is

Atburðadagatal 2009

Júní:
6 - 7 júní verður Örlygi bát safnsins siglt á sjómannadeginum á Patreksfirði, þar gefst fólki kostur á að fara í smásiglingum og finna hvernig er að sigla slíkum bát.

 

Júlí:
12. júlí Safnadagurinn
Messa í Sauðlauksdalskirkju klukkan 13:00. Messukaffi á eftir í Minjasafninu.
Klukkan 14:30 segir Sigríður Guðbjartsdóttir Láganúpi frá lífinu á Rauðasandi í kringum 1940.
Myndir sem hún málaði á steina af bæjum á Rauðasandi frá þeim tíma eru sýndar í safninu.
Aðgangur ókeypis í tilefni dagsins.

 

 

Ágúst:
Sunnudaginn 9. ágúst mun Rannveig Haraldsdóttir sýna hvernig hægt er að nota jurtir til að mynda í suðu. Kynning hennar hefst kl. 13 og gert er ráð fyrir að henni ljúki kl. 17. Suðudagurinn er liður í sýningunni, Sjóvettlingar, suða og sultugerð sem verður í safninu í sumar.

 

September:
Samantekt á því áhugaverðasta sem kom fram í sumardagskránni.

 


Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Sími: 4561511, Netfang: museum@hnjotur.is, Vefhönnun: Emstrur