Íslenska

English

Deutsch

Minjasafn Egils Ólafssonar Hnjóti
Minjasafnið Hnjóti

Vestfirðir Skemmtilegur staður til að skoða

Nálægðin við miðin

Í Rauðasandshreppi voru margar verstöðvar þar sem menn reru til fiskjar og minjar um þá sögu er víða að finna í safninu. Þar fá gestir að sjá þá hluti sem notaðir voru við veiðarnar og þann aðbúnað sem fólk bjó við í slíkum aðstæðum.

Bátasmiðir og hugvitsmenn

Margir hagleiksmenn eiga verkin sín í safninu. Þar ber einna hæst bátasmiðina sem voru listamenn þess tíma. Í safninu er fjöldi báta, þar er bátur sem er hannaður af fyrsta íslenska skipaverkfræðingnum Bárði Tómassyni. Auk þess er fjöldi árabáta sem smíðaðir voru við Breiðafjörð og á sunnanverðum Vestfjörðum.

Hverjir sóttu sjóinn

Í safninu er líka margt merkra muna frá hvalveiðitíma Íslendinga, frá Suðureyri við Tálknafjörð. Sjá má myndir sem sýna vel hvernig var að stunda þessa atvinnu.

Opnunartími

Safnið á Hnjóti verður opið alla daga frá
24. maí til 13. september.

Opnunartími er klukkan 10 - 18.
Endanleg dagskrá er ekki tilbúin en hér eru nokkur atriði sem verða í einhverri mynd: Vinsamlegast hafið samband:

museum@hnjotur.is

Atburðadagatal 2009

Júní:
6 - 7 júní verður Örlygi bát safnsins siglt á sjómannadeginum á Patreksfirði, þar gefst fólki kostur á að fara í smásiglingum og finna hvernig er að sigla slíkum bát.

 

Júlí:
12. júlí Safnadagurinn
Messa í Sauðlauksdalskirkju klukkan 13:00. Messukaffi á eftir í Minjasafninu.
Klukkan 14:30 segir Sigríður Guðbjartsdóttir Láganúpi frá lífinu á Rauðasandi í kringum 1940.
Myndir sem hún málaði á steina af bæjum á Rauðasandi frá þeim tíma eru sýndar í safninu.
Aðgangur ókeypis í tilefni dagsins.

 

 

Ágúst:
Sunnudaginn 9. ágúst mun Rannveig Haraldsdóttir sýna hvernig hægt er að nota jurtir til að mynda í suðu. Kynning hennar hefst kl. 13 og gert er ráð fyrir að henni ljúki kl. 17. Suðudagurinn er liður í sýningunni, Sjóvettlingar, suða og sultugerð sem verður í safninu í sumar.

 

September:
Samantekt á því áhugaverðasta sem kom fram í sumardagskránni.

 


Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Sími: 4561511, Netfang: museum@hnjotur.is, Vefhönnun: Emstrur