Íslenska

English

Deutsch

Minjasafn Egils Ólafssonar Hnjóti

Vestfirðir Skemmtilegur staður til að skoða

Minjasafnið Hnjóti Íslenskur þjóðbúningur

Hvað hafði fólk fyrir stafni fyrir DVD og Myspace?

Þá varð fólk að búa til sína afþreyingu. Áður en fjölmiðlar komu til sögunnar, kvað fólk rímur, sagði hvert öðru sögur og spilaði á spil, svo fátt eitt sé nefnt.

Húsbúnaður og lífsmáti

Fólk bjó og starfaði í baðstofunni í svo litlu plássi að erfitt er að ímynda sér hvernig það var hægt. Það var lágt til lofts og þrengsli voru mikil; til að mynda sváfu oftast fleiri en einn í hverju rúmi og þykja þau þó lítil í dag. Allir áttu sér sitt matarílát, askinn, og í hann var matnum skammtað. Fólk sat síðan á rúmunum og borðaði upp úr askinum með spón.

Klæðnaður og hönnun

Klæðnaður fólks var fábreyttur á nútíma mælikvarða. Þá bjó fólk sig upp á við hátíðleg tækifæri. Í safninu er skautbúningur sem kona saumaði á sig og lagði allt sitt í að koma honum upp. Hún var alla sína ævi vinnukona og hafði því úr litlu að moða en þetta var hennar draumur. Þá er töluvert um heldri kvenna hannyrðir sem bera listfengi og hönnun gott vitni.

Minjasafnið Hnjóti

Tækni og framfarir

Á safninu er til sýnis fyrsta tölvan sem kom í Vestur-Barðastrandarsýslu og er gaman að bera hana saman við fartölvunar okkar. Símstöðin þar sem gefið var samband á milli staða vekur alltaf athygli þeirrar kynslóðar sem alin er upp við farsíma. Þróun bankastarfsemi eru einni gerð skil í þessum hluta safnsins og fleira mætti nefna.

Tómstundir og leikir

Í safninu getur fólk séð hvernig skautar þróuðust frá því að vera hrossleggir og upp í þá skauta sem við þekkjum í dag. Það er hægt að fræðast um leiki vermanna og spyrja sjávöluna um framtíðina.

Opnunartími

Safnið á Hnjóti verður opið alla daga frá
24. maí til 13. september.

Opnunartími er klukkan 10 - 18.
Endanleg dagskrá er ekki tilbúin en hér eru nokkur atriði sem verða í einhverri mynd: Vinsamlegast hafið samband:

museum@hnjotur.is

Atburðadagatal 2009

Júní:
6 - 7 júní verður Örlygi bát safnsins siglt á sjómannadeginum á Patreksfirði, þar gefst fólki kostur á að fara í smásiglingum og finna hvernig er að sigla slíkum bát.

 

Júlí:
12. júlí Safnadagurinn
Messa í Sauðlauksdalskirkju klukkan 13:00. Messukaffi á eftir í Minjasafninu.
Klukkan 14:30 segir Sigríður Guðbjartsdóttir Láganúpi frá lífinu á Rauðasandi í kringum 1940.
Myndir sem hún málaði á steina af bæjum á Rauðasandi frá þeim tíma eru sýndar í safninu.
Aðgangur ókeypis í tilefni dagsins.

 

 

Ágúst:
Sunnudaginn 9. ágúst mun Rannveig Haraldsdóttir sýna hvernig hægt er að nota jurtir til að mynda í suðu. Kynning hennar hefst kl. 13 og gert er ráð fyrir að henni ljúki kl. 17. Suðudagurinn er liður í sýningunni, Sjóvettlingar, suða og sultugerð sem verður í safninu í sumar.

 

September:
Samantekt á því áhugaverðasta sem kom fram í sumardagskránni.

 


Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Sími: 4561511, Netfang: museum@hnjotur.is, Vefhönnun: Emstrur