



Á Minjasafni Egils Ólafssonar að Hnjóti gefur að líta einstætt safn gamalla muna frá Vestfjörðum sem sýna vel daglegt líf fólks til forna. Þar er líka fjöldinn allur af hlutum sem tengjast atvinnusögu fyrri hluta 20. aldar, ekki síst sjósókn og eru meðal annars nokkrir bátar til sýnis. Þessir munir veita góða innsýn í lífsbaráttu fólks og þá útsjónarsemi og sjálfsbjargarviðleitni sem fólk varð að beita til að komast af við erfiðar aðstæður.
Á safninu er varðveittur hattur Gísla á Uppsölum ásamt fleiri munum úr eigu hans. Þeir bera glöggt vitni þessum sérstaka manni sem varð þjóðfrægur á einni kvöldstund. Á safninu er ennfremur hægt að horfa á Stikluþáttinn með honum.
Í safninu er björt og heimilisleg kaffistofa þar sem upplagt er að fá sér hressingu. Þar er þráðlaust netsamband sem allir geta nýtt sér. Einnig er starfrækt svæðisupplýsingamiðstöð í safninu, þar er hægt að fá upplýsingar um aðra áhugaverða staði í þessum landshluta, gistingu og margt fleira.


Safnið á Hnjóti verður opið alla daga frá
20. maí til 12. september.
Opnunartími er klukkan 10 - 18.
Júní:
20. júní verður kynning á hveitikökum með ýmsu áleggi milli klukkan 12 og 13. Fyrirlestur um það hvernig amma bjó til hveitikökur, í umsjón starfsfólks safnsins. Dagskráin er liður í hátíðinni Matur og menning í Vesturbyggð 2010. .
Júlí:
3. til 8. júlí verður Margrét Gunnlaugsdóttir þjóðfræðingur og hönnuður með sýninguna Skæði, þar sem hún vinnur úr skinni með hliðsjón af munum á safninu. Gestum safnsins gefst tækifæri til að fræðast af Margréti um klæðnað á fyrri tíð. Sýningin er styrkt af Menningarráði Vestfjarða.
11. júlí – Safnadagurinn
Messa í Sauðlauksdal klukkan 14 og á eftir býður Minjasafnið á Hnjóti í messukaffi. Klukkan 15:30 flytja Oddný Jónsdóttir og Sveinbjörg Jónsdóttir fyrirlestur um langafa sinn Ólaf Tómas Guðbjartsson bónda í Hænuvík. Þær frænkur hafa nýlokið við að gefa út dagbók langafa síns sem ber heitið Ágrip af æviferli. Þar er lífsbaráttu fyrri tíðar vel lýst og verulega áhugavert er að kynnast þeim tíma, núna þegar aftur kreppir að í samfélaginu.
Aðgangur ókeypis í tilefni dagsins.
13. júlí opnar sýningin Félagslíf í Breiðafjarðareyjum
SFélagslíf í Breiðafjarðareyjum og verður þar í máli og myndum fjallað um félagslíf í eyjunum meðan heilsársbúseta var enn töluverð í þeim. Sýningin er styrkt af Menningarráði Vestfjarða.
Ágúst:
15. ágúst kynnir Rannveig Haraldsdóttir jurtir og hvernig er hægt að nýta þær til að bæta líðan fólks. Boðið verður upp á fjallagrasamjólk og ef til vill fleira góðgæti. Kynningin hefst klukkan 13 og gert er ráð fyrir að henni ljúki klukkan 17.
September:
5. september verður litið um öxl og sumarið gert upp með því að minnast þeirra sem lagt hafa safninu lið á liðnum árum. Dagskrá milli klukkan 14 og 15.
Birt með fyrirvara um hugsanlegar breytingar er nær dregur.

Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Sími: 4561511, Netfang: museum@hnjotur.is, Vefhönnun: Emstrur